Flýtilyklar
Fréttir
Notaleg stund á afmælisdegi Nonna í gær

ljósmyndari: Ragnar Hólm
Það voru hátt í 50 manns sem áttu notalega stund í afmælisveislunni í gær í Nonnahúsi. Haukur Ingimarsson lék listavel á hnappaharmonikku um leið og gestirnir virtu fyrir sér frummyndir Kristins G. Jóhannsonar en hann myndskreytti Nonnabækurnar í endursögn Brynhildar Pétursdóttur. Gestirnir gæddu sér að lokum á afmælistertunni í Zontahúsinu.
Nonnavinafélagið átti auk þess góða stund í Nonnahúsi á þessum merka degi.
Bestu þakkir fyrir komuna.
Til baka
Leit
Heimsóknir
Í dag: 539
Samtals: 669886
Samtals: 669886

